Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 40

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 40
verður ekkert um það sagt, hverjir mynda hina nýju stjórn, eða hvort nokkur ný stjórn verður mynduð. Afstaða Alþýðuflokksins til annarra flokka mótast að sjálfsögðu af málefnum og stefnumálum flokks- ins. Hann mun hér eftir sem hingað til leitast við að leysa vandamálin til hagsbóta fyrir vinnandi menn og konur í þessu landi, — og blasa þá einkum við dýrtíðarmálin, verðlags- og fjárhagsmálin. Hefir Alþýðuflokkurinn á undanförnum árum markað stefnu sína í þjóðmálunum yfirleitt, og mun halda áfram að berjast fyrir málefnum sínum, eftir því sem frekast er unnt. En það verður hlutverk þessa þings, að gera um það nánari ályktanir og ákveða á hvern hátt Alþýðuflokknum ber að haga störfum sínum. Sjálftstæðismálið. Eins og alkunnugt er, tóku íslendingar í sínar hendur öll sín málefni þegar Danmörk var hernumin í aprílmánuði 1940. Frá þeim tíma hefir æðsta stjórn íslenzkra mála verið í landinu og utanríkismál okkar einungis í höndum íslenzkra stjórnarvalda. Það er vissulega ákveðin ósk allra landsmanna, að svo verði framvegis um þau mál öll, enda er nú svo komið, að sambandslagasáttmálinn, er gerður var við Dan- mörku árið 1918, getur brátt fallið úr gildi fyrir fullt og allt samkvæmt þeim ákvæðum, er í honum sjálfum felast, þótt eigi sé tekið neitt tillit til þess, hvort íslendingar hafa aðrar ástæður til þess að rifta samningi þessum eða ekki. En það hefir frá 38

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.